Kostnaður við ökunám ræðst aðallega af fjölda og verðlagningu verklegra tíma sem viðkomandi þarf að taka. Lágmarksfjöldi verklegra tíma er 15 kennslustundir (bundið í reglur) og algengast er að teknir séu 16-20 tímar. Annar kostnaður felst í greiðslum til ökuskóla vegna bóklegs náms og greiðslu próftökugjalda.Verðdæmið hér fyrir neðan miðast við okkar verðlagningu á verklegri kennslu sem er nú kr. 12.600.- fyrir hverja kennslustund (45 mín greitt eftir hverja 5 tíma).
Verðdæmi
| Verkleg kennsla m.v. 15 ökutímar | 178.500 krónur | |
| Ökuskóli 1 og 2 | 27.000 krónur | |
| Ökuskóli 3 (ökugerði) | 44.500 krónur | |
| Bóklegt próf (gjald til Frumherja) | 4.120 krónur | |
| Verklegt próf (gjald til Frumherja) | 11.140 krónur | |
| Samtals | 265.260 krónur |
Fyrir æfingaakstur er ætlast til að teknir séu 10 ökutímar og skylda er að ljúka fyrri hluta ökuskóla. Algengast er að kostnaðurinn við að afla sér leyfis til æfingaaksturs sé þannig rúmlega helmingur af heildarkostnaði við ökunámið eða 126.000 kr.+ 13.500 fyrir ökuskóla 1.